Jæja bloggfærsla um Mallorca
3.ágúst:
Við stelpurnar Guðlaug, Sandra, Halla, Steffý, Sigrún og Edda fórum eldsnemma upp á keflavíkurflugvöll til að fara í ferð ársins
Þegar við komum til Mallorca var gegt mikill hiti og sól
og fórum við upp á hótel og strax á ströndina í sólbað þar sem við fengum okkur fyrsta bjór ferðarinnar
Við geltirnir vorum á Ponent mar og hinar stelpurnar voru á sora hótelinu VoraNova ..... Fyrsta kvöldið héldum við lítið fyrirpartý á vora og drukkum GRÆNGULT BURN og vodka og fantalemon
Edda braut stólinn sem hún sat í sem sínir hversu ömurlegt þetta hótel var
haha..... fórum svo í bæinn á Den Glade Viking sem er án efa skjémmtilegasti bar í GEIMI ...... Vorum allar OF drukknar enda fyrsta kvöldið og vel tekið á því
halla, sandra, guðlaug og steffý fórum heim þegar DGV lokaði og eftir skjemmtilegan popcorn slag
Stóru stelpurnar héldu áfram að djamma og edda kom út í miklum plús þetta kvöldið enda 40 pundum og 30 evrum ríkari eftir skjémmtilegan endurfund við myndavélaþjófinn og dauðann svía 
4.ágúst:
Rosa þynnka einkenndi herbergin 429 á ponent mar þennan daginn og fórum sandra, steffý og gugga í morgungöngu á voranova og mcdonalds....síðan var deginum eitt í tan og svo kíktum við í palma
- um kvöldið fórum við út að borða og svo bara annað fyrirpartý á voranova og að sjálfsögðu DGV seinna um kvöldið
Klakapartý á DGV og Ice man kvöldið
Strákarnir spiluðu í fyrstaskipti Silvíu nótt fyrir okkur og við tókum að sjálfsögðu vel undir og varð þetta fastur liður á hverju kvöldi það sem eftir var
..... Þetta var líka þegar þjóðhátíð var í eyjum og við hjéldum uppi smá þjóðhátíðarstemmningu þegar barnum lokaði..... Fórum allar á Casablanca og dönsuðum af okkur rassgatið og enduðum síðan á ógeðslegasta subway stað heimi.....
5.ágúst:
Tanning dagur á ponent og kíktum líka til magaluf í strandbúðir
Partý á Vora um kvöldið eins og áður en Halla varð eftir á ponent og fór að lúlla....Steffý og Sandra fórum heim þegar DGV lokaði en við hinar héldum áfram að djamma og fórum á Casablanca.....Kvöldið sem við kynntumst "the fat girl" öðru nabbni happy feet
haha - Sigrún lenti í smá drama en það leystist og svo var bara haldið á vora....
6.ágúst:
Einar Baldur átti afmæli ;D til hamingju með það !!! Sofið út þennan dag og reyndum að fara í sólbað en það gekk frekar illa þar sem það var rigning
en í staðinn fórum við bara í porto pi (sem er moll á mallorca) og til palma.......Fundum hinn sanna mallorca drykk á barnum á ponent og settumst við sundlaugina og drukkum.... Steffý fékk þá snilldrahugmynd að fara í nætursund og skjélltum við okkur útí nema halla sem var ný búin að fara í sturtu !!! .... Má segja að Steffý hafi merkt sér sundlaugina á ákveðinn hátt...
haha... Gerðum okkur síðan reddý fyrir djammið og fórum á DGV
- Sandra og Halla fóru snemma heim en við hinar fórum á Casablanca - Stripparakvöld
Fórum síðan heim þegar Casa lokaði og fórum allar upp á Vora.... Þar ætluðum við að fá okkur sundsprett en öryggiskallinn kom brjálaður og átti edda skjémmtilegar samræður við hann.....En við hefndum okkur á mjög ógeðslegan hátt og sá hún Steffý um það
7.ágúst:
Loksins kom smá sól og við nýttum okkur það og lágum allan daginn í tani....elduðum svo uppi á ponent og borðuðum úti á svölum..... Gerðum okkur reddý og fórum snemma í bæjinn.... Sandra var svo veik að hún fór snemma heim.....Þetta var kvöldið sem myndavélinni hennar Eddu var stolið AFTUR
og fóru þær sigrún heim - gugga, halla og steffý fóru á casablanca og þegar við ætluðum að fara heim lentum við í svoleiðis rigningu að hún náði næstum upp á hnjám og enginn taxi vildi skutla okkur heim þar sem við vorum svo RENNANDI blautar að við þurftum að labba.....rötuðum varla en þegar við komumst á ströndina gátum við komist heim.......
8. ágúst:
Engin sól og þá var haldið í palma... fórum bara í búðir og löbbuðum allar litlu göturnar og fundum nokkrar geðveikar búðir
.... Fórum svo út að borða á la paloma sem er gegt kósí spænskur staður í palma.... fórum svo bara heim gerðum okkur til og drukkum smá heima áður en við fórum í bæinn ..... Guðlaug fór snemma heim - sandra og halla komu þegar DGV lokaði en hinar urðu eftir í magaluf og fóru á Casablanca.......
9.ágúst:
Sólin kom!!!! Fórum í sólbað og vorum í tjilli allan daginn uppi á hóteli því að það var von á gesti EVA var að koma til okkar.....

fórum svo allar 7 út að borða á pizzastað í magaluf og á DGV.... Sandra og Halla héldu heim eftir lokun dgv en jújú eins og alltaf héldum við hinar á Casablanca......
10.ágúst:
Fórum í sólbað, palma og heim í tjill.... sandra, steffý og stórustelpurnar
fóru snemmá í bæinn en við hinar sátum úti á svölum að sötra malibu og fórum síðan á DGV..... fórum allar 7 á Casablanca - mikið dansað og rosastuð 
11. ágúst:
lágum bara í sólbaði þennan dag ... við geltirnir fórum allar saman út að borða og hittum hinar stelpurnar seinna á DGV.....halla, guðlaug og sandra, sigrún og edda fóru heim þegar DGV lokaði en eva og steffý héldu á Casa.....Þar hitti eva ástina sína hann Steffen.....
12. ágúst:
Tan dagur og fórum svo allar 7 snemma út að borða - ekkert djamm þennan daginn hjá okkur göltunum þar sem við vorum búnar að ákveða að fara í aqualand daginn eftir..... 13.ágúst:
Fórum í vatnsleikjagarðinn og sandra dró okkur í öll ógeðslegu tækin sem maður ætlaði fyrst ekki í en svo á endanum var nú bara frekar gaman !.....Fórum svo upp á voranova og gerðum okkur til því þetta kvöldið átti Eva "AFMÆLI" ... Jamm við lugum því semsagt að eva ætti afmæli og fórum á DGV um 10....Klæddum okkur allar í svartar leggings og svartahlýraboli og máluðum katta andlit framaní okkur ..... Á dgv fengum við að setja ipodinn hennar sigrúnar í græjurnar og hún tók við dj-starfi dgv þetta kvöldið .....Spiluðum endalaust af íslenskri tónlist og sungum ammælissönginn fyrir evu..... Drukkum 7 flöskur af grænum skotum....Sumar okkar skildu eftir kattarandlit á andlitum nokkra heppna .....So héldu Edda, Sigrún, Steffý og Gugga á Casablanca .... dönsuðum af okkur rassgatið og lentum í slag
sem var klikkað fyndið.....Barþjónarnir og dj-inn þurftu að stíja okkur í sundur.... Við áttum ekki von á þessu þar sem við gerðum ekki neitt en við fórum víst ekkað í taugarnar á einhverri gjéllu og hún lét crybaby skyrpa framan í guggu og síðan Sigrúnu og togaði og reif í hárið á sigrúnu og ekkað shjit.....Þegar þessu var lokið fórum við á subway þar sem við hittum aftur crybaby og bjó hann til ömurlega ástæðu fyrir að hrækja framan í okkur og sú var að kærustu hans hafi verið nauðgað sem síðan breyttist i vinkonu og sagan breyttist og breytttist... og hann gerði allt til að fá okkur til að vorkenna sér sem tókst alls ekki og gæjinn er víst þekktur fyrir að berja stelpur í magaluf.....en síðan fórum við bara heim.....
14.ágúst:
Við lágum í tani þennan daginn nema sandra og eva fóru og hittu foreldra sína þar sem þau komu daginn áður og fóru með þeim að versla og solliðis....gugga, halla og steffý kíktu smá í porto pi og komu síðan bara heim.... steffý fór upp á vora með eddu og sigrúnu - fórum að borða á hótelinu okkar og síðan héldu eva og guðlaug á DGV til eddu, sigrúnar og steffý.....Gugga fékk heimsókn á DGV en síðan héldum við allar bara heim þegar DGV lokaði...... 15.ágúst:
Tan, Tan, Tan.......Eva fór og hitti pabba sinn og var svona líka heppin að stúta á sér tánni í leiðinni...
kjáninn....Sandra og Sigrún kíkjtu í porto pi .....fórum síðan um kvöldið geltirnir með m&p Söndru og Pabba evu og konu hans út að borða sem var mjög gaman.... rosa góður matur og skjémmtum okkur rosa vel - þau buðu upp á skot og læti... haha... fórum svo bara heim á hótel og eva og guðlaug fóru á DGV þar sem stelpurnar voru..... eva hitti steffen aftur ....gugga og edda röltu mikið á Alex´s bar í leit að Mark
.... annars var það bara drykkjar á dgv og síðan var kíkt á Casablanca í fyrsta skipti í langan tíma.....! Þar var nánast einginn stemmari þannig edda og guðlaug fóru heim en hinar 3 voru eftir á casa í leit að einhverju eða kannski einhverjum
....
16.ágúst:
Seinasti tan dagurin og ætluðum að nýta hann til fulls og fórum svo reyndar í seinasta skipti til palma til að kíkja smá í búðir... fórum svo út að borða allar með mömmu og pabba söndru og eddu og fórum síðan í seinasta skipti í þessari ferð á Den Glade Viking
- það var mikil sorg og vorum við allar að deyja okkur langaði svo ekki að þetta væri seinasta kvöldið....
en við skjemmtum okkur samt vel og drukkum opal og nokkrar grænskotsflöskur ásamt fullt af smæsum og malibu/ananas
Sandra fór heim og Eva fljótt á eftir henni og svo Halla.... Steffý, Gugga, Sigrún og Edda voru eftir á DGV og voru að kveðja pelle og andreas
Steffý og Gugga fóru heim en Edda og Sigrún röltu á Tokyo Joe´s
.....Höfðum 3 tíma til að pakka og fara að sofa því við áttum að mæta út á flugvöll um hálf 11 
17.ágúst:
Fórum út á flugvöll - fengum okkur mcdonalds og fórum í flugvélina og jújú 4 tímum seinna komnar heim úr 2 vikna snilldar ferð - sem verður klárlega endurtekin eftir ár !!!!!
Myndirnar koma fljótlega á 123.is/supergengid og svo sjáum við til hvort við nennum að copy(a) þær hingað 
- Geltirnir